Innviðaráðuneyti

1195/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga, nr. 502/2012.

1. gr.

12. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Að ósk viðkomandi sveitarfélags er eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga skylt við útreikn­ing á afkomu og fjárhagsstöðu þess skv. 13. og 14. gr. að undanskilja tekjur, útgjöld, eignir, skuldir og skuldbindingar sem hljótast af eignarhlutum þess í veitu- og orkufyrirtækjum, enda verði það fyrir umtalsvert meiri útgjöldum og/eða beri umtalsvert meiri skuldir en annars væri vegna eignar­hlutanna.

Ákvæði 1. mgr. fellur úr gildi 1. janúar 2030.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 64. gr. og 81. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 24. október 2024.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica