1. gr.
Á eftir orðinu "tannlækningar" í 2. málsl. 1. gr. bætast orðin "og kostnaður vegna ferða til talmeinafræðings, samkvæmt reglugerð nr. 1166/2007, um styrki Tryggingastofnunar ríkisins vegna þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga sem eru án samnings við heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra".
2. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í i-lið 1. mgr., sbr. 3. mgr., 41. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 12. febrúar 2008.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Berglind Ásgeirsdóttir.