Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

639/2006

Reglugerð um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) elli- og örorkulífeyris samkvæmt lögum um almannatryggingar. - Brottfallin

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) elli- og örorkulífeyris skv. 2. mgr. 11. gr. og 5. mgr. 12. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu hækka frá 1. júlí 2006 að telja um 5,5% frá því sem þau voru í júní 2006. Einnig skulu frítekjumörk (tekjumörk) elli- og örorkulífeyris hækka frá 1. janúar 2007 að telja um 2,9% frá því sem þau voru í desember 2006.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr., sbr. 65. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 21. júlí 2006.

Siv Friðleifsdóttir.

Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica