Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

1004/2004

Reglugerð um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) samkvæmt lögum nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) skv. 2. mgr. 11. gr., 5. mgr. 12. gr., 17. gr. og 8. mgr. 43. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu hækka frá 1. janúar 2005 að telja um 5% frá því sem þau voru í desember 2004.

Neðra frítekjumark (tekjumark) aldurstengdrar örorkuuppbótar sem tiltekið er í 15. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skal vera það sama og efra tekjumark örorkulífeyris skv. 5. mgr. 12. gr. sömu laga.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr., 15. gr., 17. gr. og 43. gr, sbr. 65. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2005. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 992/2003 um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) samkvæmt lögum nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. desember 2004.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica