Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

622/2003

Reglugerð um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) skv. lögum nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum. - Brottfallin

622/2003

REGLUGERÐ
um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) skv. lögum nr. 117/1993
um almannatryggingar, með síðari breytingum.

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) skv. 2. mgr. 11. gr., 4. mgr. 12. gr. og 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu hækka frá 1. september 2003 að telja um 6,0% frá því sem þau voru í ágúst 2003.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 17. gr., 66. gr., sbr. 65. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 20. ágúst 2003.

Jón Kristjánsson.
Ragnheiður Haraldsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica