Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

619/2002

Reglugerð um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) skv. lögum nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum. - Brottfallin

619/2002

REGLUGERÐ
um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) skv. lögum nr. 117/1993
um almannatryggingar, með síðari breytingum.

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) skv. 2. mgr. 11. gr., 5. mgr. 12. gr. og 1. - 7. mgr. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu hækka frá 1. september 2002 að telja um 8,9% frá því sem þau voru í ágúst 2002.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 66. gr., sbr. 65. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. ágúst 2002.

Jón Kristjánsson.
Jón Sæmundur Sigurjónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica