1. gr.
Rétt til þess að kalla sig sjúkranuddara og starfa sem slíkur hefur sá einn, sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra.
2. gr.
Leyfi samkvæmt 1. gr. skal veita þeim íslenskum ríkisborgurum sem lokið hafa námi sem viðurkennt er sem slíkt of heilbrigðisyfirvöldum. Umsækjendur skulu hafa næga kunnáttu í íslensku máli og réttarreglum er lúta að starfinu. Leita skal umsagnar landlæknis áður en leyfi er veitt.
3. gr.
Nú uppfyllir umsækjandi skilyrði 2. gr. að öðru leyti en því að hann hefur ekki íslenskt ríkisfang, er þá ráðherra heimilt að veita honum takmarkað eða tímabundið leyfi að fenginni umsögn landlæknis.
4. gr.
Starfsvettvangur sjúkranuddara er á heilbrigðisstofnunum og eigin stofum. Með sjúkranuddi er átt við nudd í lækningaskyni samkvæmt tilvísun og á ábyrgð læknis.
5. gr.
Öðrum en sjúkranuddurum er óheimilt að starfa sem sjúkranuddarar.
6. gr.
Sjúkranuddara er skylt að gæta þagmælsku um atriði, sem hann hafði vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst þótt hann láti of störfum. Sömu reglur skulu gilda um starfsfólk það, sem sjúkranuddari kann að hafa í starfi.
Sjúkranuddara ber að þekkja skyldur sínar, viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.
8. gr.
Sjúkranuddara er skylt að halda dagbók um þá, er leita til hans og aðrar skýrslur í samræmi við fyrirmæli landlæknis.
9. gr.
Um sjúkranuddara gilda að öðru leyti reglur læknalaga nr. 80/1969.
Reglur læknalaga gilda um viðurlög við brotum í starfi og sviptingu starfsleyfis og endurveitingu starfsréttinda.
10. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, öðlast gildi þegar við birtingu.
Ákvæði til bráðabirgða.
Ráðherra getur fram til 31. desember 1987 veitt íslenskum ríkisborgurum, sem eru í starfi við gildistöku reglugerðarinnar og hafa starfað í 3 ár samfellt, ótakmarkað starfsleyfi, að fenginni umsögn landlæknis.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 24. apríl 1987.
Ragnhildur Helgadóttir.
Páll Sigurðsson.