REGLUGERÐ
um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) skv. lögum nr. 117/1993um almannatryggingar, með síðari breytingum.
1. gr.
Frítekjumörk (tekjumörk) skv. 2. mgr. 11. gr., 4. mgr. 12. gr. og 1. - 6. mgr. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu hækka frá 1. september 2000 að telja um 7% frá því sem þau voru í ágúst 2000.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 65. gr., sbr. 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 22. ágúst 2000.
Ingibjörg Pálmadóttir.
Jón Sæmundur Sigurjónsson.