Reglugerð
um (29.) breytingu á reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja,
afgreiðslu þeirra og merkingu nr. 421/1988.
1.gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á viðauka 4 við reglugerðina:
Efni. |
Hámarksmagn og/eða takmarkanir |
Dæmi um lyf og lyfjaform er selja má án lyfseðils. |
Áletrun og/eða upplýsingar á fylgiseðli, sem afhenda skal með lyfjum. |
Cetirizinum. |
Töflur 10 mg. Mest 10 stk. handa einstaklingi. |
Histal, töflur |
Fylgiseðill samkvæmt ákvörðun lyfjanefndar ríkisins. |
Levonorgestrelum Ethinylestradiolum. |
Töflur. Í hverri töflu levonorgestrelum 0,25 mg. ethinylestradiolum 50 mikrog. Mest 4 stk. handa einstaklingi. |
Tetragynon, töflur |
Fylgiseðill samkvæmt ákvörðun lyfjanefndar ríkisins. |
2.gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 44. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, öðlast gildi 1. júní 1998.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 5. júní 1998.
Ingibjörg Pálmadóttir
Einar Magnússon.