REGLUGERÐ
um (30.) breytingu á reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja,
afgreiðslu þeirra og merkingu nr. 421/1988.
1. gr.
Eftirfarandi er fellt úr viðauka 4 við reglugerðina:
Efni. |
Hámarksmagn og/eða takmarkanir. |
Dæmi um lyf og lyfjaform er selja má án lyfseðils. |
Áletrun og/eða upplýsingar á fylgiseðli, sem afhenda skal með lyfinu. |
Levonorgestrelum Ethinylestradiolum |
Töflur. Í hverri töflu levonorgestrelum 0,25 mg, ethinylestradiolum 50 míkrog. Mest 4 stk. handa einstaklingi. |
Tetragynon, töflur. |
Fylgiseðill samkvæmt ákvörðun lyfjanefndar ríkisins. |
2. gr.
Eftirfarandi er bætt við viðauka 4 við reglugerðina:
Efni. |
Hámarksmagn og/eða takmarkanir. |
Dæmi um lyf og lyfjaform er selja má án lyfseðils. |
Áletrun og/eða upplýsingar á fylgiseðli, sem afhenda skal með lyfinu. |
Codeini phosphas Ibuprofenum |
Lyfjaform í afmældum skömmtum. Einstakur skammtur mest 10 mg/200 mg. Mest 10 stk. handa einstaklingi. |
Íbúkód, töflur. |
Fylgiseðill samkvæmt ákvörðun lyfjanefndar ríkisins. |
Penciclovirum |
Lyfjaform í afmældum skömmtum. Einstakur skammtur mest 1 túpa eða 20 mg. |
Vectavir, krem |
Fylgiseðill samkvæmt ákvörðun lyfjanefndar ríkisins. |
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 44. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, öðlast gildi 1. nóvember 1998.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 13. október 1998.
Ingibjörg Pálmadóttir.
Einar Magnússon.