Velferðarráðuneyti

1203/2018

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2019 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. - Brottfallin

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra lang­veikra eða alvarlega fatlaðra barna, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2019:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. skal nema 832.658 kr. á mánuði.
  2. Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr., skal nema 233.555 kr. á mánuði.
  3. Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., skal nema 233.555 kr. á mánuði.
  4. Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 34.362 kr. á mánuði.
  5. Sérstakar barnagreiðslur skv. 2. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 9.948 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 25.864 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
  6. Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. skal vera 80.485 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr., laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2019. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1194/2017, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2018 sam­kvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

 Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica