1. gr.
Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2018:
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr., laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2018. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1248/2016, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2017 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Velferðarráðuneytinu, 29. desember 2017.
Ásmundur Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.