1. gr.
Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.
Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Til að ná því markmiði skal ríkissjóður veita árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2007 nema 0,15% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal greitt í október og byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.
Fjármálaráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.
2. gr.
Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.
Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:
3. gr.
Úthlutun fjárframlags árið 2007.
Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða með lögum nr. 177/2006, um breytingu á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2007 eingöngu renna til lífeyrissjóða á samningssviði Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2006 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2006 samtals 638.747.286.848 kr. og er áætlað fjárframlag ársins 2007 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals 958.120.930 kr. og skiptist það milli lífeyrissjóða á samningssviði Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem hér segir:
Lífeyrissjóðir |
Fjárhæð kr. |
Hlutfall |
Eftirlaunasjóður Sláturfélags Suðurlands |
383.248 |
0,040% |
Eftirlaunasjóður starfsmanna Olíuverslunar Íslands |
191.624 |
0,020% |
Festa, lífeyrissjóður |
99.740.389 |
10,410% |
Gildi, lífeyrissjóður |
370.026.303 |
38,620% |
Lífeyrissjóður Eimskipafélags Íslands hf. |
1.389.275 |
0,145% |
Lífeyrissjóður Austurlands |
54.900.329 |
5,730% |
Lífeyrissjóður Mjólkursamsölunnar |
958.121 |
0,100% |
Lífeyrissjóður Norðurlands |
90.925.676 |
9,490% |
Lífeyrissjóður Rangæinga |
6.084.068 |
0,635% |
Lífeyrissjóður starfsmanna Áburðarverksmiðju ríkisins |
191.624 |
0,020% |
Lífeyrissjóður verslunarmanna |
179.312.332 |
18,715% |
Lífeyrissjóður Vestfirðinga |
29.366.406 |
3,065% |
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja |
29.318.500 |
3,060% |
Lífeyrissjóðurinn Skjöldur |
47.906 |
0,005% |
Sameinaði lífeyrissjóðurinn, aldursdeild |
21.222.379 |
2,215% |
Sameinaði lífeyrissjóðurinn, stigadeild |
38.708.086 |
4,040% |
Stafir, lífeyrissjóður |
35.354.662 |
3,690% |
Við greiðslu fjárframlags ársins 2008, í október 2008, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2007 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2006.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 17. október 2007.
Árni M. Mathiesen.
Baldur Guðlaugsson.