Eftirfarandi reglugerð ráðsins (EB), sem vísað er til í lið 1c í XV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2002 frá 6. desember 2002 um breytingu á XV. viðauka (Ríkisaðstoð) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1177/2002 frá 27. júní 2002 um tímabundnar varnarráðstafanir fyrir skipasmíðaiðnaðinn.
Reglugerðin og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2002, sbr. 1. gr., sem birt hefur verið í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 9, dags. 13. febrúar 2003 (bls. 23), eru birtar sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 48. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.