Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 4. gr. reglugerðarinnar:
a. | Í stað 3. málsl. 2. mgr. 4. gr. kemur nýr málsl. svohljóðandi: Seljandi skal festa greiðslukvittun sjóðsvélar við frumrit ávísunarinnar. |
b. | Við greinina bætist svohljóðandi málsgrein: Ríkisskattstjóri staðfestir form endurgreiðsluávísana. |
Orðin: "í innsigluðum umbúðum" í 1. málsl. 2. og 3. mgr. 5. gr. falla brott.
Tafla í lið C í fylgiskjali orðist svo:
Sölufjárhæðir í |
Endurgreiðsla á 14%
|
Endurgreiðsla á 24,5%
|
viðkomandi þrepi |
virðisaukaskatti
|
virðisaukaskatti
|
1.001-2.000 |
150
|
250
|
2.001-3.000 |
200
|
350
|
3.001-4.000 |
250
|
450
|
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 43. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.