1. gr.
Öll innkaup opinberra aðila á vörum, þjónustu og verkum yfir innlendum og erlendum viðmiðunarfjárhæðum skulu auglýst opinberlega á útboðsvef sem er sameiginlegur auglýsingavettvangur fyrir opinber útboð, sbr. 55. gr. laga um opinber innkaup.
2. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs innanlands, samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup, eru fyrir vöru- og þjónustusamninga 15.500.000 kr. og fyrir verksamninga 49.000.000 kr.
3. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup skulu vera sem hér segir:
Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:
Vörusamningar | 18.734.400 kr. |
Þjónustusamningar | 18.734.400 kr. |
Verksamningar | 721.794.800 kr. |
Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:
Vörusamningar | 28.752.100 kr. |
Þjónustusamningar | 28.752.100 kr. |
Verksamningar | 721.794.800 kr. |
4. gr.
Viðmiðunarfjárhæð vegna innkaupa á opinberum þjónustusamningum um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu samkvæmt VIII. kafla laga um opinber innkaup, sem gerðir eru af opinberum aðilum, er 97.575.000 kr.
5. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir vegna kostnaðarþátttöku opinberra aðila sbr. 14. gr. laga um opinber innkaup skulu vera 721.794.800 kr. vegna verksamninga og 28.752.100 kr. vegna þjónustusamninga.
6. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir skv. 3.-5. gr. reglugerðar þessarar gilda einnig um útboðsskyldu vegna innkaupa samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup sem Ísland er aðili að.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2365 frá 18. desember 2017 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/24/ESB að því er varðar beitingu viðmiðunarfjárhæða við útboð og gerð samninga.
Reglugerðin er sett með heimild í 23. og 55. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 904/2016 um auglýsingu innkaupa á útboðsvef, viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 15. febrúar 2018.
F. h. r.
Sigurður H. Helgason.
Hrafn Hlynsson.