1. gr.
Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 8. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2008:
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingu, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, öðlast gildi 1. janúar 2008. Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 1020/2005 um eingreiðslu til elli- og örorkulífeyrisþega í desember 2005, reglugerð nr. 640/2006 um sérstaka viðbótarfjárhæð til elli- og örorkulífeyrisþega sem greiðist af Tryggingastofnun ríkisins á tímabilinu 1. ágúst til 31. desember 2006 og reglugerð nr. 1075/2006 um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2007.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. desember 2007.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Ragnheiður Haraldsdóttir.