1. gr.
Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 2. mgr. 1. gr. telst nám sem er lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna, hvort sem um er að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám, og nám á námsbrautum sem leiða til stúdentsprófs hjá framhaldsskólum sem námsúrræði skv. d-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir enda hafi Vinnumálastofnun viðurkennt námið sem lið í vinnumarkaðsúrræðinu Nám er vinnandi vegur.
Ákvæði þetta gildir til 31. desember 2011.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 16. ágúst 2011.
Guðbjartur Hannesson.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.