REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um útfararþjónustu nr. 232,
3. apríl 1995 með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað orðanna "fastri starfsstöð" í 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar komi: Nauðsynlegri aðstöðu.
2. gr.
5. gr. orðist svo:
Einstaklingar er öðlast vilja leyfi skulu vera búsettir hér á landi, vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Búsetuskilyrðið gildir þó ekki um ríkisborgara þeirra ríkja, sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Sanna þarf ríkisborgararétt og krefjast má sannana um önnur skilyrði.
Félög er öðlast vilja leyfi skulu vera skráð hér á landi eða á Evrópska efnahagssvæðinu. Þau mega ekki hafa farið fram á eða verið í greiðslustöðvun, vera bundin við nauðasamninga eða bú þeirra undir gjaldþrotaskiptum. Sanna skal slíkt með vottorði.
3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt ákvæðum laga nr. 36, 4. maí 1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 21. október 1999.
Sólveig Pétursdóttir.
Hjalti Zóphóníasson.