258/1995
Reglugerð um breyting á reglugerð um bréfaskipti, símtöl og heimsóknir til afplánunarfanga, nr. 119 9. mars 1990. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
Reglugerð
um breyting á reglugerð um bréfaskipti, símtöl og heimsóknir
til afplánunarfanga, nr. 119 9. mars 1990.
1. gr.
1. mgr. 9. gr. orðist svo:
Með bréf til og frá eftirtöldum aðilum skal farið eftir ákvæðum 2. og 3. mgr.
- Dómsmálaráðherra og dómsmálaráðuneyti.
- Fangelsismálastofnun ríkisins.
- Dómstólum.
- Ríkissaksóknara.
- Lögreglu.
- Umboðsmanni Alþingis.
- Mannréttindanefnd Evrópu.
- Forseta Evrópunefndar um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.
- Verjanda vegna sakamáls sem er til meðferðar.
- Verjanda í því sakamáli sem leiddi til þess dóms sem fangi afplánar.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 30. gr. laga um fangelsi og fangavist, nr. 48 19. maí 1988, öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 26. apríl 1995.
Þorsteinn Pálsson.
Þorsteinn A. Jónsson.