Bátar, sem leyfi hafa til handfæraveiða með dagatakmörkunum, skulu stunda veiðar með krókaaflamarki frá upphafi fiskveiðiársins 2004/2005. Skal úthluta hverjum báti, sem varanlegar sóknarheimildir eru bundnar við 10. maí 2004, krókaaflahlutdeild í upphafi fiskveiðiársins 2004/2005 í þorski, ufsa, ýsu, karfa, steinbít, keilu og löngu. Skal krókaaflahlutdeild hvers báts fundin með tilliti til aflareynslu bátsins á öðru hvoru fiskveiðiárinu 2001/2002 eða 2002/2003, að vali útgerðar, á eftirfarandi hátt:
1. | Viðmiðunaraflareynsla í þorski er fundin sem hlutdeild af meðalafla sóknardagabáta fiskveiðiárin 2000/2001, 2001/2002 og 2002/2003, miðað við óslægðan fisk. Hlutdeild bátsins í þorski reiknast sem afli bátsins annað hvort fiskveiðiárið 2001/2002 eða 2002/2003 sem hlutfall af heildaraflamagni allra sóknardagabátanna þannig fengið. Viðmiðunaraflareynsla í öðrum tegundum í krókaaflamarki er fundin sem afli bátsins annað hvort fiskveiðiárið 2001/2002 eða 2003/2004, en skal þó ekki vera lægri en 100 kg í hverri tegund miðað við óslægðan fisk. |
2. | Reiknigrunnur hvers báts til krókaaflahlutdeildar í þorski og ufsa skal byggja á viðmiðunaraflareynslu þannig að til reiknigrunnsins teljast 91% af upp að 42.5 lesta viðmiðunaraflareynslu, miðað við óslægðan fisk, og 45% af því sem umfram er. Reiknigrunnurinn í þorski skal þó aldrei vera lægri en 15 lestir, miðað við óslægðan fisk. Fyrir aðrar tegundir í krókaaflamarki skal reiknigrunnurinn vera jafn viðmiðunaraflareynslu. Taka skal tillit til áætlaðrar aflaaukingar, allt að 20 lestum á hvern bát, miðað við óslægðan fisk, vegna aukningar afkastagetu þeirra sóknardagabáta, sem endurnýjaðir hafa verið á fiskveiðiárinu 2002/2003 og á fiskveiðiárinu 2003/2004 fram til 28. maí 2004, enda hafi sóknargetan ekki nýst til myndunar aflareynslu. Miða skal í þessu tilliti til meðalafla sambærilegra báta. |
3. | Krókaaflahlutdeild hvers báts í einstökum tegundum er síðan reiknuð út frá reiknigrunni hans sem hlutfall af úthlutuðu aflamarki fiskveiðiársins 2003/2004. Hafi varanlegar sóknarheimildir á báti breyst þannig að sóknardagar eru fleiri eða færri á bátnum 10. maí 2004 en voru á bátnum á því ári, sem lagt er til grundvallar við útreikning á aflareynslu hans, að teknu tilliti til skerðingar sóknardaga milli ára, skal krókaaflahlutdeild bátsins hækkuð eða lækkuð hlutfallslega miðað við breytingu á sóknardagafjölda. Með sama hætti skerðist hlutfallslega krókaaflahlutdeild báts, sem úthlutað er aflahlutdeild miðað við 15 lesta reiknigrunnslágmark, í hlutfalli við fækkun sóknardaga frá 1. september 2001 til 10. maí 2004. |
Þrátt fyrir 1. gr. og ákvæði 6. gr. laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, skal gefa bátum, sem endurnýjaðir hafa verið á fiskveiðiárinu 2002/2003, kost á að stunda handfæraveiðar í 18 sóknardaga á fiskveiðiárinu 2004/2005 og síðan skal þeim bátum úthlutuð krókaaflahlutdeild í upphafi fiskveiðiársins 2005/2006 samkvæmt reglum 1. gr. Bátum, sem endurnýjaðir hafa verið frá upphafi fiskveiðiársins 2003/2004 en fyrir 28. maí 2004, skal gefinn kostur á að stunda handfæraveiðar í 18 sóknardaga fiskveiðiárin 2004/2005 og 2005/2006 hvort ár, en síðan skal þeim bátum úthlutuð krókaaflahlutdeild í upphafi fiskveiðiársins 2006/2007 samkvæmt reglum 1. gr.
Um nýtingu sóknardaga gilda að öðru leyti ákvæði 6. gr. laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum.
Það telst endurnýjun báts þegar aðili, sem á bát fyrir, fær sér annan bát og flytur allar sóknarheimildir af þeim, sem hann átti fyrir til hins.
Hafi bátur verið endurnýjaður á tímabilinu 1. september 2001 til 28. maí 2004 skal aflareynsla hans á viðmiðunarárunum reiknuð með við mat á aflareynslu þess báts, sem kemur í hans stað.
Fiskistofa skal fyrir 30. júní 2004 gera útgerðum grein fyrir kostum samkvæmt 1. og 2. gr. Þar skal koma fram hvert aflamark hvers báts í einstökum tegundum hefði orðið á fiskveiðiárinu 2003/2004, miðað við úthlutun þess árs.
Útgerðir báta skulu fyrir 10. júlí 2004 skýra Fiskistofu skriflega frá því, hvort viðmiðunarárið skuli lagt til grundvallar við útreikning krókaaflahlutdeildar. Jafnframt skulu útgerðir þeirra skipa, sem kost eiga á því að stunda veiðar á sóknardögum, skv. 1. mgr. 2. gr. tilkynna Fiskistofu fyrir 10. júlí, ef þær velja þann kost.
Velji útgerð fyrir 10. júlí 2004 ekki viðmiðunarár til úthlutunar krókaaflahlutdeildar, skal úthluta báti hennar krókaaflahlutdeild í samræmi við hærri viðmiðunarreynslu bátsins. Tilkynni útgerð, sem á kost að stunda veiðar með sóknardögum, ekki að hún velji þann kost fyrir 10. júlí, skal úthluta báti hennar veiðileyfi með krókaaflamarki þegar í upphafi fiskveiðiársins 2004/2005.
Reglugerð þessi er gefin út með stoð í 9. gr. laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, sbr. lög nr. 147, 20. desember 2003, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.