1337/2019
Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 560/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir.
1. gr.
50. töluliður 1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1761 frá 23. október 2019 um breytingu á 1. hluta I. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 að því er varðar að færa Sameinaða konungsríkið Stóra-Bretland og Norður-Írland og tilteknar hjálendur krúnunnar á skrá yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyfður er aðflutningur á sendingum af alifuglum og alifuglaafurðum til Sambandsins.
2. gr.
Ofangreind framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og á sama tíma fellur brott reglugerð nr. 425/2019 um (13.) breytingu á reglugerð nr. 560/2014.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. desember 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)
Reglugerð sem fellur brott: