1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2019, frá 8. febrúar 2019, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1587 frá 22. október 2018 um að afturkalla tilnefningu Istituto Superiore di Sanità, Róm, Ítalíu, sem tilvísunarrannsóknarstofu í Evrópu fyrir þær efnaleifar sem eru tilgreindar í c-lið 3. liðar í B-flokki í I. viðauka við tilskipun ráðsins 96/23/EB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 15, frá 21. febrúar 2019, bls. 652.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. apríl 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.