1. gr.
Heimilt er að flytja allt að 15% af aflamarki í Snæfellsrækju frá fiskveiðiárinu 2017/2018 yfir á fiskveiðiárið 2018/2019.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. heimild 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 938/2018, um heimild til flutnings á allt að 10% af aflamarki í Snæfellsrækju frá fiskveiðiárinu 2017/2018 yfir á fiskveiðiárið 2018/2019. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. nóvember 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.