1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðauka IV A við 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn og verð- og magntoll:
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | |
Tollskrárnúmer: | kg | % | kr./kg | ||
Frjóegg til útungunar: | |||||
0407.1100 | Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus | 01.07.18 - 30.06.19 | ótilgr. | 0 | 0 |
0407.1900 | Önnur | 01.07.18 - 30.06.19 | ótilgr. | 0 | 0 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt seu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2019.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. júní 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Elísabet Anna Jónsdóttir.