1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðauka IV A við 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn og verð- og magntoll:
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | |
Tollskrárnr.: | Frjóegg til útungunar: | % | kr./kg | ||
0407.1100 | Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus | 01.07.17-30.06.18 | ótilgr. | 0 | 0 |
0407.1900 | Önnur | 01.07.17-30.06.18 | ótilgr. | 0 | 0 |
-- Önnur | |||||
0408.1901 | Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi í ≥ 5 kg umbúðum | 01.07.17-30.06.18 | ótilgr. | 0 | 39 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2018.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. júní 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Birgitta Kristjánsdóttir.