Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

856/2015

Reglugerð um úthlutun á opnum tollkvótum á ógerilsneyddri lífrænni mjólk. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á ógerilsneyddri lífrænni mjólk, frystri, samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

  Vara Tímabil Vörumagn
lítrar
Verðtollur
%
Magntollur
kr./lítra
Úr tollskrárnr.: Mjólk og rjómi, þó ekki kjarnað eða með viðbættum sykri eða öðru sætuefni:        
  - Með fituinnihaldi sem er meira en 1% en ekki meira en 6% miðað við þyngd:        
ex 0401.2009 -- Annað (ógerilsneydd lífræn mjólk, fryst) 28.09.15-31.03.16 ótilgr. 0 0

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. mars 2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. september 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Baldur Sigmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica