1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 31. tölul., svohljóðandi:
31. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 952/2014 frá 4. september 2014 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Malasíu í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf að því er tekur til alvarlegrar fuglainflúensu og að því er varðar fyrirmyndir að heilbrigðisvottorðum fyrir dýr og dýraafurðir vegna innflutnings á alifuglum, dagsgömlum ungum, útungunareggjum, alifuglakjöti og öldum strútfuglum og eggjum.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar, sem talin er upp í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
4. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. september 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Eggert Ólafsson.
Baldur Arnar Sigmundsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)