1. gr.
Frá og með 4. nóvember 2014 til og með 31. desember 2014, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði suður af Reykjanesskaga sem markast af eftirfarandi punktum:
2. gr.
Frá og með 4. nóvember 2014 til og með 30. apríl 2015, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem markast af eftirfarandi punktum:
3. gr.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2014. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Jóhann Guðmundsson. |
Baldur P. Erlingsson.