411/2014
Reglugerð um (20.) breytingu á reglugerð nr. 653/2001 um hámark dýralyfjaleifa í sláturafurðum, eggjum og mjólk. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til XIII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1161/2012 frá 7. desember 2012 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið fenbendasól. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2013, frá 9. október 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56, frá 10. október 2013, bls. 502.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1186/2012 frá 11. desember 2012 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið foxím. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2013, frá 9. október 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56, frá 10. október 2013, bls. 499.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1191/2012 frá 12. desember 2012 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið natríumsalisýlat. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2013, frá 9. október 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56, frá 10. október 2013, bls. 497.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 59/2013 frá 23. janúar 2013 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið mónensín. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 189/2013, frá 9. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 121.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 115/2013 frá 8. febrúar 2013 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið díklasúríl. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 189/2013, frá 9. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 257.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 116/2013 frá 8. febrúar 2013 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið eprínómektín. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 189/2013, frá 9. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 260.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 394/2013 frá 29. apríl 2013 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið mónepantel. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2013, frá 9. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 265.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 406/2013 frá 2. maí 2013 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu í tengslum við efnið prednisólón. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2013, frá 9. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 14. nóvember 2013, bls. 263.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 489/2013 frá 27. maí 2013 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (ESB) nr. 37/2010 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu með tilliti til efnisins tvíþátta ríbósakjarnsýru sem samsvarar veiruríbósakjarnsýru sem kóðar fyrir hluta af hjúppróteininu og hluta af milligenasvæðinu í ísraelsku bráðalömunarveirunni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 39/2014, frá 9. apríl 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 10. apríl 2014, bls. 185.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. apríl 2014.
|
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
|
Halldór Runólfsson.
|
Eggert Ólafsson.