1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. veitir atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra almenna heimild til innflutnings á nautakjöti skv. 5. ml. 3. mgr. 65. gr. laga nr. 99/1993, sbr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðauka III A með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn, verð- og magntoll:
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
|
kg |
% |
kr./kg |
|||
Tollskrárnr.: |
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst: |
95.000 |
|||
0202.1000 |
Skrokkar og hálfir skrokkar |
01.07.13 - 30.09.13 |
0 |
233 |
|
0202.20xx |
Sneitt á annan hátt með beini |
01.07.13 - 30.09.13 |
0 |
519 |
|
0202.30xx |
Beinlaust |
01.07.13 - 30.09.13 |
0 |
962 |
|
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, saltað, |
|||||
þurrkað eða reykt: |
|||||
0210.20xx |
Beinlaust/annars |
01.07.13 - 30.09.13 |
0 |
586 |
3. gr.
Tollkvótum skv. 2. gr. verður stýrt með tímabili innflutnings, þó þannig að ef heildarinnflutningur verður meiri en tilgreint magn segir til um, skulu gilda tollar samkvæmt tollaskrá.
4. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
5. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. september 2013.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. apríl 2013.
Steingrímur J. Sigfússon.
Rebekka Hilmarsdóttir.