1. gr.
Frá og með 4. nóvember 2012 til og með 31. desember 2012, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði suður af Reykjanesskaga sem markast af eftirfarandi punktum:
1. 63°49,30´ N - 021°39,10´ V
2. 63°30,00´ N - 021°39,00´ V
3. 63°40,00´ N - 022°32,00´ V
4. 63°48,70´ N - 022°32,00´ V
5. 63°49,80´ N - 022°04,20´ V
2. gr.
Frá og með 4. nóvember 2012 til og með 30. apríl 2013, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem markast af eftirfarandi punktum:
1. 64°20,00´ N - 023°08,00´ V
2. 64°04,90´ N - 022°43,60´ V
3. 64°02,00´ N - 022°44,40´ V
4. 64°02,00´ N - 023°42,00´ V
5. 64°20,00´ N - 023°42,00´ V
3. gr.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. október 2012.
F. h. r.
Hrefna Karlsdóttir.
Arnór Snæbjörnsson.