1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 139/2007, frá 27. október 2007, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1883/2006 um aðferðir við sýnatöku og greiningu vegna opinbers eftirlits með innihaldi díoxína og díoxínlíkra PCB-efna í tilteknum matvælum.
2. gr.
Fylgiskjal.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Brottfall reglugerða.
Við gildistöku reglugerðar þessarar falla eftirfarandi reglugerðir úr gildi:
6. gr.
Lagastoð.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
7. gr.
Gildistaka.
Reglugerðin tekur þegar gildi. Þó taka efnisákvæði reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1883/2006 ekki til frumframleiðslu á kjöti, mjólk og eggjum fyrr en 1. nóvember 2011. Um hugtakið "frumframleiðslu" gildir skilgreining 4. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. mars 2010.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)