1076/2018
Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 560/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 48. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1650 frá 5. nóvember 2018 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Rússland og Bandaríkin í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyfður er innflutningur til Sambandsins eða umflutningur um Sambandið á tilteknum alifuglavörum í tengslum við alvarlega fuglainflúensu.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. nóvember 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)