1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar við viðauka 2 við reglugerðina:
Í hluta B, Steinefni, bætast við eftirfarandi línur:
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1203 frá 5. júlí 2017 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/46/EB og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1925/2006 að því er varðar lífrænan kísil (mónómetýlsílanetríól) og kalsíumfosfórýlfásykrur (POs-Ca®) sem bætt er í matvæli og notuð við framleiðslu á fæðubótarefnum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. nóvember 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Iðunn Guðjónsdóttir.