REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 170/1987 um þátttöku
almannatrygginga í bifreiðakaupum fatlaðra.
1. gr.
Fjárhæðir þær, sem nefndar eru í 1. mgr. 5. greinar, skulu breytast þannig:
Í tölulið 1) komi kr. 100 þús. í stað kr. 80 þús. Í tölulið 2) komi kr. 300 þús. í stað kr. 250 þús.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er skv. 19. gr. og 39. gr. stl.b laga nr. 67/1971 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 9. febrúar 1988.
Guðmundur Bjarnason.
Jón Ingimarsson