1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Eftir ákvæðum reglugerðar þessarar geta þeir sem leyfi hafa til fólksflutninga í atvinnuskyni samkvæmt lögum nr. 73/2001 um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi fengið endurgreidda 2/3 hluta þess virðisaukaskatts sem greiddur var/er vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða 1. september 2000 til 31. desember 2005.
Reglugerð þessi er sett með stoð í ákvæði til bráðabirgða með lögum nr. 57/2001, um breyting á lögum um virðisaukaskatt nr. 50/1988, með síðari breytingum, og 49. gr. laga nr. 50/1988, og öðlast gildi þegar í stað.