REGLUGERÐ
um hlut Vinnueftirlits ríkisins í tryggingagjaldi launagreiðenda
1. gr.
Vinnueftirlit ríkisins fær í sinn hlut til að standa straum af kostnaði vegna framkvæmdar laga nr. 46/1980 0,08% af gjaldstofni tryggingagjalds, sem er allar tegundir launa eða þóknunar fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskylt er skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981.
2. gr.
Reglugerð þessi sem er sett samkvæmt 2. tl. 3. gr. laga nr. 113/1990 öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglugerðir nr. 480 20. júní 1983 og nr. 232 25. maí 1990.
Félagsmálaráðuneytið, 11. febrúar 1991.
Jóhanna Sigurðardóttir
Húnbogi Þorsteinsson