REGLUGERÐ
um ábyrgðargjald atvinnurekenda.
1. gr.
Ábyrgðargjald atvinnurekenda vegna ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota skal árið 1998 vera 0,04% af gjaldstofni sbr. 6. gr. laga um tryggingagjald nr. 113/1990, með síðari breytingum.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er skv. 2. mgr. 3. gr. laga um ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota nr. 53/1993, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 23. desember 1997.
Páll Pétursson.
Húnbogi Þorsteinsson.