REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um Fræðslusjóð brunamála
nr. 138/1993, sbr. reglugerð nr. 471/1995.
1. gr.
Í stað orðanna "á síðari hluta ársins 1995" í ákvæði til bráðabirgða kemur: á fyrri hluta ársins 1996.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 2. mgr. 24. gr. laga um brunavarnir og brunamál nr. 41/1992, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 2. apríl 1996.
Páll Pétursson.
Sesselja Árnadóttir.