REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um hlut Vinnueftirlits ríkisins í tryggingagjaldi launagreiðenda nr. 60/1991, ásamt síðari breytingum.
1. gr.
Í stað 0,07% í 1. gr. reglugerðarinnar komi 0,06%.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er skv. 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 113/1990 ásamt síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 1997.
Félagsmálaráðuneytinu, 17. desember 1996.
Páll Pétursson.