1036/2016
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 630/2014 um takmarkanir á notkun tiltekinna, hættulegra efna í raf- og rafeindabúnaði.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á IV. viðauka reglugerðarinnar:
-
Í stað 26. liðar kemur nýr liður svohljóðandi:
Blý í
a) |
lóðningarefni á prentplötur, |
b) |
húðir á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og húðir á prentplötum, |
c) |
lóðningarefni til að tengja víra og rafstrengi, |
d) |
lóðningarefni til að tengja ferjöld og skynjara, |
sem notuð eru varanlega við hitastig undir -20°C við eðlileg notkunar- og geymsluskilyrði.
Blý í lóðningarefni raftenginga við hitaskynjara í búnaði sem hannaður er til reglulegrar notkunar við hitastig undir -150°C.
Fellur úr gildi 30. júní 2021.
-
Við bætist einn nýr töluliður svohljóðandi:
- Kadmíumanóður í Hersch-rafhlöðum fyrir súrefnisnema sem notaðir eru í vöktunar- og stýribúnaði í iðnaði, þar sem þörf er fyrir meiri næmni en sem nemur 10 ppm. Fellur úr gildi 15. júlí 2023.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:
- Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1028 frá 19. apríl 2016 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni í rafmagnstengingar við hitamælingarnema í tilteknum tækjum í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 175/2016 frá 23. september 2016.
- Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1029 frá 19. apríl 2016 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir kadmíumforskaut í Hersch-rafhlöðum fyrir tiltekna súrefnisskynjara sem eru notaðir í vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 175/2016 frá 23. september 2016.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 24. nóvember 2016.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.