1. gr.
Við III. viðauka reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir á viðeigandi stað, svohljóðandi:
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á IV. viðauka reglugerðarinnar:
a) Í stað 12. töluliðar kemur nýr liður, svohljóðandi:
b) Við bætast tuttugu nýir töluliðir, 21.-40. töluliður, svohljóðandi:
-
Kadmíum í fosfórhúðir í skyggnimögnurum fyrir röntgenmyndir til 31. desember 2019 og í varahluti fyrir röntgentæki, sem eru sett á markað í Evrópusambandinu fyrir 1. janúar 2020.
-
Merkiefnið blýasetat til notkunar í hnitstýrða (e. stereotactic) höfuðramma til notkunar við tölvusneiðmyndatöku og segulómun og í staðsetningarkerfi í búnað fyrir gammageisla- og agnageislameðferð. Fellur úr gildi 30. júní 2021.
-
Blý sem málmblendisþáttur í legum og slitflötum í lækningatækjum sem verða fyrir jónandi geislun. Fellur úr gildi 30. júní 2021.
-
Blý til að gera lofttæmisheldar tengingar mögulegar milli áls og stáls í röntgenskyggnimögnurum. Fellur úr gildi 31. desember 2019.
-
Blý í yfirborðshúðir á pinnatengikerfum sem krefjast óseglaðs tengilbúnaðar sem er notaður varanlega við hitastig undir -20°C við eðlileg notkunar- og geymsluskilyrði. Fellur úr gildi 30. júní 2021.
-
Blý í
-
|
lóðningarefni á prentplötur,
|
-
|
húðir á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og húðir á prentplötum,
|
-
|
lóðningarefni til að tengja víra og rafstrengi,
|
-
|
lóðningarefni til að tengja ferjöld og skynjara,
|
sem eru notuð varanlega við hitastig undir -20°C við eðlileg notkunar- og geymsluskilyrði. Fellur úr gildi 30. júní 2021.
-
Blý í
-
|
lóðningarefni,
|
-
|
húðir á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og prentplötum,
|
-
|
tengingar raftauga, hlífa og umluktra tengja,
|
sem eru notuð í:
|
a)
|
segulsviði innan kúlurýmis með 1 m geisla í kringum segulmiðju í læknisfræðilegum segulómtækjum, þ.m.t. lífsmarkavaktarar sem eru hannaðir til notkunar innan þessa rýmis, eða
|
b)
|
segulsviði innan 1 m fjarlægðar frá ytri flötum segla hringhraðla og segla til færslu og stefnustýringar geisla, sem eru notaðir við agnageislameðferð.
|
Fellur úr gildi 30. júní 2020.
|
-
Blý í lóðningarefni til að festa stafræna fylkisfjölnema úr kadmíumtellúri og kadmíumsinktellúri á prentplötur. Fellur úr gildi 31. desember 2017.
-
Blý í málmblendi sem ofurleiðara eða varmaleiðara til nota í kulhausa lághitakæla og/eða í lághitakælda kulkanna (e. cold probes) og/eða í lághitakæld spennujöfnunarkerfi í lækningatækjum (í 8. flokki) og/eða í vöktunar- og stýritækjum í iðnaði.
Fellur úr gildi 30. júní 2021.
-
Sexgilt króm í basaskammtara sem eru notaðir til framleiðslu á ljósbakskautum í röntgenskyggnimögnurum til 31. desember 2019 og í varahluti fyrir röntgentæki sem eru sett á markað í Evrópusambandinu fyrir 1. janúar 2020.
-
Blý, kadmíum og sexgilt króm í endurnotuðum varahlutum úr lækningatækjum sem eru sett á markað fyrir 22. júlí 2014 og notuð í búnað í 8. flokki sem er settur á markað fyrir 22. júlí 2021, að því tilskildu að sú endurnotkun fari fram í endurskoðunarhæfu, lokuðu skilakerfi fyrir viðskipti á milli fyrirtækja og að endurnotkun hluta sé tilkynnt neytendum.
Fellur úr gildi 21. júlí 2021.
-
Blý í lóðningarefni á prentplötur nema og gagnasöfnunareininga fyrir jáeindaskanna sem eru innbyggðir í segulómtæki (MRI). Fellur úr gildi 31. desember 2019.
-
Blý í lóðningarefni á prentplötur með íhlutum sem eru notaðar í færanleg lækningatæki, önnur en færanleg neyðarhjartastuðtæki, í II. flokki a og II. flokki b í tilskipun 93/42/EBE.
Fellur úr gildi 30. júní 2016 að því er varðar flokk II a og 31. desember 2020 að því er varðar flokk II b.
-
Blý sem örvari í flúrljómandi dufti úrhleðslupera þegar þær eru notaðar í lampa til ljósmeðferðar á blóði utan líkama (e. extracorporeal photopheresis lamps) og innhalda BSP-fosfór (BaSi2O5:Pb).
Fellur úr gildi 22. júlí 2021.
-
Kvikasilfur í kaldskautsflúrperur fyrir baklýsta vökvakristalsskjái, sem er ekki meira en 5 mg í hverri peru, sem eru notaðir í vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði sem eru sett á markað fyrir 22. júlí 2017.
Fellur úr gildi 21. júlí 2024.
-
Blý notað í önnur kerfi en tengikerfi með sveigjanlegum pinnum í vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði.
Fellur úr gildi 31. desember 2020. Má nota eftir þann dag í varahlutum fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði sett á markað fyrir 1. janúar 2021.
-
Blý í platínuhúðuð platínurafskaut sem eru notuð til að mæla eðlisleiðni þar sem a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum á við:
a)
|
mælingar á breiðu sviði eðlisleiðni sem nær yfir meira en eitt stærðarþrep (t.d. svið á bilinu 0,1 mS/m og 5 mS/m) sem fara fram á tilraunastofum til að mæla styrk sem er óþekktur,
|
b)
|
mælingar á lausnum þar sem krafist er nákvæmni sem nemur +/- 1% af sýnatökubilinu og þar sem krafist er mikils tæringarþols fyrir eftirfarandi:
|
|
i.
|
lausnir með sýrustig undir pH 1,
|
|
ii.
|
lausnir með basavirkni yfir pH 13,
|
|
iii.
|
ætandi lausnir sem innihalda halógenlofttegundir,
|
c)
|
mælingar á eðlisleiðni sem er meiri en 100 mS/m sem verða að fara fram með færanlegum mælitækjum.
|
Fellur úr gildi 31. desember 2018.
|
-
Blý í lóðningarefni til tengingar á stöfluðum skífueiningum (SDE) fyrir stóra fleti með yfir 500 samtengi á hvern skilflöt sem eru notaðir í röntgengeislaskynjara fyrir tæki til tölvusneiðmyndatöku og fyrir röntgentæki.
Fellur úr gildi 31. desember 2019. Má nota eftir þann dag í varahluti fyrir tölvusneiðmyndatæki og röntgentæki sett á markað fyrir 1. janúar 2020.
-
Blý í örrásaplötum sem eru notaðar í búnaði þar sem a.m.k. einn af eftirfarandi eiginleikum er til staðar:
a)
|
fyrirferðarlítill nemi fyrir rafeindir eða jónir, þar sem rými fyrir nemann takmarkast að hámarki við 3 mm/örrásaplötu (þykkt nema + rými til ísetningar örrásaplötu), að hámarki 6 mm í allt og annars konar hönnun, sem gefur aukið rými fyrir nemann, er vísindalega og tæknilega ekki möguleg,
|
b)
|
tvívíð rúmupplausn (e. spatial resolution) til greiningar á rafeindum eða jónum sem a.m.k. eitt af eftirfarandi gildir um:
|
|
i.
|
svörunartími styttri en 25 ns,
|
|
ii.
|
sýnagreiningarsvæði stærra en 149 mm²,
|
|
iii.
|
margföldunarstuðull hærri en 1,3 × 10³,
|
c)
|
svörunartími við greiningu rafeinda eða jóna styttri en 5 ns,
|
d)
|
sýnagreiningasvæði stærra en 314 mm² til að greina rafeindir eða jónir,
|
e)
|
margföldunarstuðull hærri en 4,0 × 107.
|
Undanþágan fellur úr gildi á eftirfarandi dagsetningum:
|
a)
|
21. júlí 2021 að því er varðar lækningatæki og vöktunar- og eftirlitstæki,
|
b)
|
21. júlí 2023 að því er varðar lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi,
|
c)
|
21. júlí 2024 að því er varðar vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði.
|
-
Blý í rafefnakeramík í þéttum fyrir málspennu sem er lægri en 125 V riðstraumur eða 250 V jafnstraumur fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði.
Fellur úr gildi 31. desember 2020. Má nota eftir þann dag í varahlutum fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði sett á markað fyrir 1. janúar 2021.
3. gr.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/1/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý sem málmblendisþátt í legum og slitflötum í lækningatækjum sem verða fyrir jónandi geislun, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/2/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir kadmíum í fosfórhúðir í skyggnimögnurum fyrir röntgenmyndir til 31. desember 2019 og í varahluti fyrir röntgentæki sem sett eru á markað í Evrópusambandinu fyrir 1. janúar 2020, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/3/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir merkiefnið blýasetat til notkunar í hnitstýrða (e. stereotactic) höfuðramma til notkunar við tölvusneiðmyndatöku og segulómun og í staðsetningarkerfi í búnað fyrir gammageisla- og agnageislameðferð, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/4/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý til að gera lofttæmisheldar tengingar mögulegar milli áls og stáls í röntgenskyggnimögnurum, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/5/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni á prentplötur, húðir á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og húðir á prentplötum, lóðningarefni til að tengja víra og rafstrengi og lóðningarefni til að tengja ferjöld og skynjara, sem eru notuð varanlega við hitastig undir -20°C við eðlileg notkunar- og geymsluskilyrði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/6/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í yfirborðshúðir á pinnatengikerfum sem krefjast óseglaðs tengilbúnaðar sem er notaður varanlega við hitastig undir -20°C við eðlileg notkunar- og geymsluskilyrði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/7/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni, húðir á úttakstengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og prentplötum, tengingar raftauga, hlífa og umluktra tengja, sem eru notuð a) í segulsviði innan kúlurýmis með 1 m geisla í kringum segulmiðju í læknisfræðilegum segulómtækjum, þ.m.t. lífsmarkavaktarar sem eru hannaðir til notkunar innan þessa rýmis, eða b) í segulsviði innan 1 m fjarlægðar frá ytri flötum segla hringhraðla og segla til færslu og stefnustýringar geisla, sem eru notaðir við agnageislameðferð, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/8/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni til að festa stafræna fylkisfjölnema úr kadmíumtellúri og kadmíumsinktellúri á prentplötur, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/9/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý og kadmíum í málmtengi sem búa til ofurleiðandi segulrásir í nemum segulómtækja (MRI), ofurleiðnisegulmæla (SQUID), kjarnsegulómsefnagreina (NMR) eða Fourier-vörpunarmassagreina (FTMS), í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/10/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í málmblendi sem ofurleiðara eða varmaleiðara til nota í kulhausa lághitakæla og/eða í lághitakælda kulkanna (e. cold probes) og/eða í lághitakæld spennujöfnunarkerfi í lækningatækjum (í 8. flokki) og/eða í vöktunar- og stýritækjum í iðnaði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/11/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir sexgilt króm í basaskammtara sem eru notaðir til framleiðslu á ljósbakskautum í röntgenskyggnimögnurum til 31. desember 2019 og í varahluti fyrir röntgentæki sem eru sett á markað í Evrópusambandinu fyrir 1. janúar 2020, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/12/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni á prentplötur nema og gagnasöfnunareininga fyrir jáeindaskanna sem eru innbyggðir í segulómtæki (MRI), í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/13/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni á prentplötur með íhlutum sem eru notaðar í færanleg lækningatæki, önnur en færanleg neyðarhjartastuðtæki, í II. flokki a og II. flokki b í tilskipun 93/42/EBE, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/14/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir 3,5 mg af kvikasilfri á hverja peru í sambyggðum flúrlömpum með einum sökkli til almennrar lýsingar < 30 W með a.m.k. 20.000 klst. endingartíma, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/15/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý, kadmíum og sexgilt króm í endurnotuðum varahlutum úr lækningatækjum sem eru sett á markað fyrir 22. júlí 2014 og notuð í búnað í 8. flokki sem er settur á markað fyrir 22. júlí 2021, að því tilskildu að sú endurnotkun fari fram í endurskoðunarhæfu, lokuðu skilakerfi fyrir viðskipti á milli fyrirtækja og að endurnotkun hlutanna sé tilkynnt neytendum, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/16/ESB frá 18. október 2013 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý sem örvara í flúrljómandi dufti úrhleðslupera þegar þær eru notaðar í lampa til ljósmeðferðar á blóði utan líkama (e. extracorporeal photopheresis lamps) og innihalda BSP-fosfór (BaSi2O5:Pb), í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2014, þann 27. júní 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/69/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í rafefnakeramík í þéttum fyrir málspennu sem er lægri en 125 V riðstraumur eða 250 V jafnstraumur fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/70/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í örrásaplötur, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/71/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni til tengingar á stöfluðum skífueiningum (SDE) fyrir stóra fleti, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/72/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í lóðningarefni og húðun á tengjum á rafmagns- og rafeindaíhlutum og húðun á prentplötum sem eru notaðar í kveikjueiningar og önnur rafmagns- og rafeindastjórnkerfi hreyfils, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/73/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í platínuhúðuð platínurafskaut, sem eru notuð til að mæla eðlisleiðni, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/74/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir blý í önnur tengikerfi með sveigjanlegum pinnum en þrýstibogatengi fyrir vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/75/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á IV. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir kvikasilfur í kaldskautsflúrperur fyrir baklýsta vökvakristalsskjái, sem er ekki meira en 5 mg í hverri peru, sem eru notaðir í vöktunar- og eftirlitstæki í iðnaði sem eru sett á markað fyrir 22. júlí 2017, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014.
-
Framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/76/ESB frá 13. mars 2014 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/65/ESB, að því er varðar undanþágu fyrir kvikasilfur í handgerðar lýsandi úrhleðslupípur, sem eru notaðar í skilti, skrautlýsingu eða lýsingarhönnun arkitekta ásamt sérstakri lýsingu og ljósalist, í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum, sem vísað er til í tölul. 12q, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2014, þann 25. september 2014.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.
F. h. r.