Reglugerð þessi tekur til aðila sem stunda viðskipti með afla og forsvarsmanna útgerða vegna viðskipta með afla eða afurðir vinnsluskipa.
Aðilar samkvæmt 1. gr. skulu gera skýrslur og standa skil á þeim skýrslum til Fiskistofu, allt samkvæmt nánari fyrirmælum reglugerðar þessarar. Skýrslum skal skila á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út eða með öðrum hætti sem Fiskistofa samþykkir.
Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi hugtaka svo sem hér segir:
1.
|
Kaupandi afla: Aðili sem kaupir afla hvort sem er til vinnslu eða endursölu, þ.m.t. kaup aðila á afla af eigin skipum. | |
2.
|
Afli: Sjávarafli sem ekki hefur verið meira gert að en blóðga, slægja eða hausa. | |
3.
|
Afurð: Sjávarafli sem meira hefur verið gert að en blóðga, slægja eða hausa. | |
4.
|
Vinnsluskip: Skip þar sem frekari vinnsla fer fram en blóðgun, slæging eða hausun. | |
5.
|
Vinnsluaðili: Aðili sem annast hvers konar vinnslu afla, aðra en blóðgun, slægingu eða hausun. | |
6.
|
Fiskmarkaður: Uppboðsmarkaður fyrir sjávarafla. |
Kaupandi afla skal mánaðarlega skila til Fiskistofu vigtarskýrslu yfir móttekinn afla. Sérstök skýrsla skal gerð vegna hvers söluaðila.
Í vigtarskýrslu skal færa eftirfarandi upplýsingar:
1.
|
Seljanda, nafn og kennitölu. | |
2.
|
Kaupanda, nafn og kennitölu. | |
3.
|
Afhendingardag. | |
4.
|
Fisktegund. | |
5.
|
Ástand afla, (slægt, hausað, ísað, heilfryst, hæft/óhæft). | |
6.
|
Magn tegundar. | |
7.
|
Kílóverð tegundar. |
Ætli kaupandi afla öðrum aðila að annast vinnslu aflans skal tilgreina vinnsluaðila.
Ef afli/afurð er keypt/ur beint af fiskiskipi skal jafnframt skrá:
8.
|
Nafn skips. | |
9.
|
Skipaskrárnúmer. | |
10.
|
Veiðarfæri. | |
11.
|
Veiðisvæði. | |
12.
|
Löndunarhöfn. | |
13.
|
Löndunardag. |
Ef afli er keyptur fyrir milligöngu fiskmarkaðar á uppboði þarf ekki að gera grein fyrir verði þess afla í vigtarskýrslu.
Kaupandi afla skal mánaðarlega skila einni skýrslu sem tilgreinir ráðstöfun keypts afla samkvæmt samanlögðum vigtarskýrslum hans.
Í ráðstöfunarskýrslu skal færa eftirfarandi upplýsingar:
1.
|
Kaupanda. | |
2.
|
Starfsstöð. | |
3.
|
Ástand afla, (slægt, hausað, ísað, heilfryst). | |
4.
|
Fisktegund. | |
5.
|
Magn tegundar. | |
6.
|
Vinnsluaðferð. | |
7.
|
Birgðir í upphafi tímabils. | |
8.
|
Fiskkaup á tímabilinu. | |
9.
|
Sölu óunnins afla: |
a. | Til vinnslustöðvar. | ||
b. | Til útflutnings í gám. | ||
c. | Til útflutnings með flugfrakt. |
10.
|
Sölu til neyslu innanlands. | |
11.
|
Birgðir í lok tímabils. |
Ef kaupandi afla framselur afla skal hann skila skýrslu þar sem greint er frá nafni og kennitölu kaupanda afla, afhendingardegi, fisktegund, magni og ástandi afla við sölu.
Kaupandi afla skal eigi síðar en 15. hvers mánaðar senda Fiskistofu skýrslur skv. 4. og. 5. gr. vegna undanfarandi mánaðar.
Útgerð vinnsluskipa skal eigi síðar en 30 dögum eftir að vinnsluskip lýkur veiðiferð og kemur til hafnar senda Fiskistofu skýrslu um magn og verð afla og einstakra afurða sem voru afrakstur veiðiferðar.
Hafi afli/afurðir ekki verið seldur/ar eða ekki liggur fyrir samningur við kaupanda um verð afla/afurða skal verð þeirra áætlað í samræmi við kjarasamning við áhöfn vinnsluskipsins. Endanlegar upplýsingar um verð skal senda Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir sölu.
Fiskmarkaður skal mánaðarlega og eigi síðar en 15. hvers mánaðar senda Fiskistofu skýrslu með upplýsingum um seldan afla á uppboði í síðastliðnum mánuði. Þar skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar um einstök viðskipti:
1.
|
Nafn fiskmarkaðar og kennitala. | |
2.
|
Seljandi. | |
3.
|
Nafn skips og skipaskrárnúmer. | |
4.
|
VSK-númer seljanda. | |
5.
|
Löndunarhöfn. | |
6.
|
Löndunardagur. | |
7.
|
Söludagur. | |
8.
|
Fisktegund. | |
9.
|
Ástand afla, (slægt, hausað, ísað, heilfryst, hæft/óhæft). | |
10.
|
Útgerðaraðili. | |
11.
|
Veiðarfæri. | |
12.
|
Veiðisvæði. | |
13.
|
Kaupandi. | |
14.
|
Magn tegundar. | |
15.
|
Kílóverð tegundar. |
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum, skv. IV. kafla laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og skv. VII. kafla laga nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
Þá er Fiskistofu heimilt að svipta aðila starfsleyfi eða vinnsluleyfi fyrir brot á reglugerð þessari eftir því sem nánar er mælt fyrir um í lögum nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða.
Reglugerð þessi sem er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2002 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.