1. gr.
Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari.
2. gr.
Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr. og gistináttaskattur eru innifalin í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 1.900 | |
2. | 13 til 17 ára börn, í fylgd með fullorðnum | kr. | 800 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr. og gistináttaskattur eru innifalin í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 5.000 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 2.500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr. og gistináttaskattur eru innifalin í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 4.000 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 2.500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.
3. gr.
Gjald fyrir aðra þjónustu:
1. | Sturtugjald, eitt skipti | kr. | 500 | |
2. | Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring | kr. | 1.000 | |
3. | Afnot af þvottavél, eitt skipti | kr. | 500 | |
4. | Afnot af þurrkara, eitt skipti | kr. | 500 | |
5. | Afnot af aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) | kr. | 500 | |
6. | Veitt aðstoð við ferðamenn | kr. | 16.000 | |
7. | Útgáfa leyfa, stór verkefni | kr. | 25.000 | |
8. | Útgáfa leyfa, lítil verkefni | kr. | 10.000 | |
9. | Aðgangur að íshellum, pr. mann | kr. | 1.000 | |
10. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að íshellum er gjaldfrjáls.
Sturtugjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.
4. gr.
Svæðisgjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl. 00.00 - 24.00):
1. | Flokkur A - Fólksbifreið, 5 manna og færri | kr. | 750 | |
2. | Flokkur B - Fólksbifreið, 6-9 manna | kr. | 1.000 | |
3. | Flokkur C - Rúta, 10-18 manna | kr. | 1.800 | |
4. | Flokkur D - Rúta, 19-32 manna | kr. | 3.500 | |
5. | Flokkur E - Rúta, 33-64 manna | kr. | 6.400 | |
6. | Flokkur F - Rúta, 65 manna og fleiri | kr. | 9.000 | |
7. | Bifhjól | kr. | 300 |
Svæðisgjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.
5. gr.
Reglugerð þessi, er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 727/2017 um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 13. júlí 2018.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Kjartan Ingvarsson.