1. gr.
Prófnefnd sem endurskoðendaráð skipar til fjögurra ára í senn, annast próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa.
2. gr.
Próf skulu að jafnaði haldin einu sinni ár hvert.
Prófnefnd skal auglýsa fyrirhuguð próf með a.m.k. þriggja mánaða fyrirvara. Skulu þeir sem hyggjast þreyta próf tilkynna það prófnefnd eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir upphaf prófa. Tilkynningu skulu fylgja skilríki um að fullnægt sé skilyrðum 4. og 6. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 79/2008, um endurskoðendur. Prófnefnd skal meta hvort framangreindum skilyrðum er fullnægt en mati hennar má skjóta til endurskoðendaráðs.
3. gr.
Próf skulu vera skrifleg. Prófnefnd tekur hverju sinni ákvörðun um fjölda sjálfstæðra úrlausnarefna og efnissvið þeirra, sbr. 2. mgr., og lengd próftíma.
Í prófunum skal látið reyna á verklega kunnáttu til þess að nýta fræðilega þekkingu sem varðar endurskoðun og endurskoðendur. Meðal þess sem fellur undir fræðilega þekkingu er:
a) alþjóðlegir reikningsskilastaðlar og settar reikningsskilareglur,
b) lagakröfur og staðlar sem tengjast gerð ársreikninga og samstæðureikninga,
c) greining fjárhagsupplýsinga,
d) kostnaðarbókhald og stjórnendareikningsskil,
e) áhættustýring og innra eftirlit,
f) lagakröfur og faglegir staðlar sem tengjast endurskoðun og endurskoðendum,
g) alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar og aðrar staðfestingar (IFAC International Assurance Pronouncements),
h) siðareglur og óhæði endurskoðenda.
Fræðileg þekking skal einnig ná yfir a.m.k. eftirfarandi greinar að því marki sem þær skipta máli við endurskoðun:
a) félagarétt og stjórnarhætti fyrirtækja,
b) lög um gjaldþrotaskipti og sambærilega málsmeðferð,
c) skattalög,
d) einkamála- og verslunarrétt,
e) upplýsingatækni og tölvukerfi,
f) grundvallarreglur í fjármálastjórn fyrirtækja.
Prófverkefni skulu samin af einstökum prófnefndarmönnum eða þeim, sem prófnefndin felur það starf. Verkefnin og vægi úrlausnarefna innan þeirra, skulu lögð fyrir prófnefnd til samþykktar.
4. gr.
Skriflegar prófúrlausnir skulu merktar prófnúmerum.
Einkunnir skulu gefnar í heilum, eða heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Lágmarkseinkunn til að standast próf er 7,5.
Tveir aðilar skulu meta sjálfstætt úrlausnir prófmanna, annars vegar sá sem samdi viðkomandi verkefni og hins vegar aðili sem prófnefnd tilnefnir. Þeir ráða í sameiningu úrlausnarefni í hverri prófgrein og dæma úrlausnir í sameiningu. Mat þeirra er endanlegt.
5. gr.
Einkunnir skulu birtar prófmönnum innan tveggja mánaða frá því að prófum lýkur. Heimilt er ráðherra að framlengja þann frest um allt að einn mánuð.
Prófnefnd skal afhenda þeim prófmönnum sem standast próf skírteini því til staðfestingar.
6. gr.
Innan eins mánaðar frá því að niðurstöður prófa liggja fyrir getur prófmaður óskað eftir því við prófnefnd að fá nánari upplýsingar um frammistöðu sína í prófunum. Prófnefnd ákveður hverju sinni hvort upplýsingar verða gefnar með viðræðum við einstaka prófmenn eða á fundi sem boðað er til með öllum prófmönnum þar sem þeim er sameiginlega gerð grein fyrir því hvað teljast fullnægjandi svör við einstökum úrlausnarefnum.
7. gr.
Ef prófmaður nær ekki tilskilinni lágmarkseinkunn sbr. 4. gr. er honum heimilt að þreyta próf að nýju þegar próf eru haldin skv. 2. gr.
8. gr.
Þegar prófmaður er skráður í próf skal hann greiða prófgjald. Ráðherra ákveður prófgjald ár hvert að fengnum tillögum endurskoðendaráðs.
9. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 3. gr. skulu vera fjórar prófgreinar í prófi sem haldið verður á árinu 2009 fyrir þá prófmenn sem áttu ólokið einu, tveim eða þrem prófum við gildistöku laga nr. 79/2008 um endurskoðendur. Við mat á úrlausnum skal gefin ein einkunn fyrir hverja prófgrein sem að lágmarki skal vera sú sama og í 2. mgr. 4. gr.
Ef þörf er á skal prófnefnd halda próf á árunum 2010 og 2011 fyrir þá prófmenn sem vísað er til í 1. mgr.
10. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í lögum nr. 79/2008, um endurskoðendur, öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi reglugerð nr. 475/1998, um próf til löggildingar endurskoðunarstarfa.
Fjármálaráðuneytinu, 3. júlí 2009.
F. h. r.
Guðmundur Árnason.
Þórður Reynisson.