1. gr.
4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Lágmarksmöskvastærð rækjuvörpu skal vera 45 mm í vængjum aftur að þaki (miðneti) og 36 mm í öðrum hlutum vörpunnar. Við veiðar á rækju innfjarða skal nota net á legg í a.m.k. fjórum öftustu metrum vörpunnar eða smárækjuskilju, sbr. reglugerð um gerð og búnað smárækjuskilju. Um gerð og búnað vörpunnar vísast til reglugerðar um möskvastærðir og útbúnað varpna til veiða á botnfiski, rækju og humri, með síðari breytingum.
Einnig er heimilt að nota í stað leggpoka eða smárækjuskilju þvernetspoka með fjórum byrðum felldan á línur. Við notkun leggpoka eða þverpoka er heimilt að nota þrjá síðumöskva fyrir framan kolllínumöskvana.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. apríl 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Skarphéðinsson.