1. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, og breytist 61. gr. reglugerðar nr. 985/2011 í samræmi við það:
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast jafnframt gildi hér á landi eftirfarandi ákvarðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, settar á grundvelli reglugerðar (EB) nr. 300/2008 frá 11. mars 2008, um sameiginlegar reglur um flugvernd, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, og breytist 2. mgr. 61. gr. reglugerðar nr. 985/2011 í samræmi við það:
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 70. gr. og 70. gr. d, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 27. febrúar 2015.
Ólöf Nordal.
Hermann Sæmundsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)