I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um farmflutninga á landi í atvinnuskyni með ökutækjum, hvort sem um eitt ökutæki eða samtengd ökutæki er að ræða.
Leyfi Vegagerðarinnar þarf til að hafa með höndum þá vöruflutninga sem þessi reglugerð nær til. Leyfið skal gilda í allt að fimm ár og vera óframseljanlegt, sbr. þó 2. mgr. 8. gr. Heimilt er að veita leyfi til skemmri tíma óski umsækjandi eftir því.
2. gr.
Skilgreining.
Með farmflutningum í atvinnuskyni er átt við flutning á hvers kyns farmi gegn endurgjaldi þegar flutningsþjónusta er seld sérstaklega og flytjandi starfar við flutningsþjónustu. Dæmi um það eru farmflutningafyrirtæki og vörubifreiðastjórar sem starfa sem verktakar við flutning á farmi.
II. KAFLI
Framkvæmd leyfisveitinga.
3. gr.
Leyfisveitingar og leyfismerki.
Vegagerðin hefur með höndum útgáfu almenns rekstrarleyfis og leyfismerkja fyrir þá sem stunda farmflutninga í atvinnuskyni. Vegagerðin skal jafnframt hafa umsjón með eftirliti samkvæmt reglugerð þessari. Vegagerðin skal hafa á að skipa sérstökum eftirlitsmönnum til að annast eftirlitið og setur þeim starfsreglur.
Leyfishafi skal hafa afrit af leyfisbréfi sýnilegt í bifreið sinni og leyfismerki fest í vinstri kant framrúðu eða á númeraplötu bifreiðarinnar.
4. gr.
Skilyrði leyfis.
Þeir einir sem uppfylla eftirtalin skilyrði mega stunda farmflutninga í atvinnuskyni með ökutækjum:
Framangreindum skilyrðum verður leyfishafi að fullnægja á leyfistímanum.
Þrátt fyrir ákvæði 2. tl. 1. mgr. 4. gr. getur Vegagerðin heimilað umsækjanda að starfa sem flutningsaðili á landi að því tilskildu að hann tilkynni um tilnefningu annars aðila sem fullnægir kröfum 2. og 3. tl. 1. mgr. 4. gr. enda sjái hinn síðarnefndi um daglegan rekstur fyrirtækisins.
5. gr.
Námskeið.
Námskeið í umsjón Vegagerðarinnar verða eftirfarandi:
Námskeið samkvæmt ákvæði þessu eru í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í tilskipun nr. 96/26/EB, sbr. tilskipun nr. 98/76/EB, um aðgang að starfsgrein farmflytjanda á vegum og starfsgrein aðila sem stunda farþegaflutninga á vegum og um gagnkvæma viðurkenningu á prófskírteinum, vottorðum og öðrum vitnisburði um formlega menntun og hæfi sem á að auðvelda þessum aðilum að neyta staðfesturéttarins í innanlands- og millilandaflutningum.
Vegagerðin skal útbúa námsskrá að höfðu samráði við hagsmunaðila sem að greininni standa. Þátttökugjald skal tilgreint í námsskránni.
6. gr.
Framlagning gagna.
Þegar umsókn er lögð fram skulu eftirtalin gögn fylgja:
Umsókn er því aðeins gild að öll ofangreind gögn fylgi umsókn.
Vegagerðin leggur mat á þau gögn sem umsókn fylgja og er henni heimilt að óska eftir frekari gögnum gerist þess þörf. Ef tilskilin gögn fylgja ekki umsókn eða ef ekki er orðið við beiðni um frekari gögn er Vegagerðinni heimilt að hafna umsókn.
7. gr.
Leyfishafi.
Leyfi má veita einstaklingum, hlutafélögum, einkahlutafélögum eða sameignarfélögum enda uppfylli þau skilyrði 1. tl. 1. mgr. 4. gr. þessarar reglugerðar.
Hjá félaginu skal starfa forsvarsmaður sem ber ábyrgð á rekstrinum og uppfyllir skilyrði 2. og 3. tl. 1. mgr. 4. gr.
Leyfishafi skal tilkynna Vegagerðinni um þær bifreiðar sem hann notar við rekstrarleyfisskylda starfsemi.
III. KAFLI
Ýmis ákvæði.
8. gr.
Brottfall leyfa.
Leyfi samkvæmt reglugerð þessari fellur niður ef annað af eftirtöldum tveimur atriðum á við:
Vegagerðin getur við andlát leyfishafa heimilað erfingjum hans að stunda farmflutninga tímabundið, að hámarki eitt ár frá andláti hans. Umsókn þess efnis skal send Vegagerðinni innan 3ja mánaða frá andláti leyfishafa. Tilnefndur forsvarsmaður, sem ábyrgð ber á rekstrinum, skal uppfylla skilyrði 2. og 3. tl. 1. mgr. 4. gr.
Ef leyfi fellur niður vegna atvika sem getið er um í 1. mgr. skal Vegagerðin senda leyfishafa eða forsvarsmanni leyfishafa tilkynningu þess efnis og frá hvaða tíma leyfið telst niður fallið.
9. gr.
Heimild til að fella leyfi úr gildi.
Vegagerðin getur fellt leyfi úr gildi ef hún fær tilkynningu um að leyfishafi eða forsvarsmaður leyfishafa uppfylli ekki lengur skilyrði 1.-3. tl. 1. mgr. 4. gr.
Tilkynning sem berst Vegagerðinni samkvæmt 1. mgr. má hvort heldur sem er vera munnleg eða skrifleg. Hún skal innihalda eftirfarandi atriði:
Áður en leyfi er fellt úr gildi samkvæmt 1. mgr. skal Vegagerðin senda viðvörun um fyrirhugaða niðurfellingu leyfis þar sem koma skal fram tilefni niðurfellingar og leyfishafa gefinn kostur á að bæta úr annmörkum. Gefa skal leyfishafa 3 vikur til að bæta úr annmörkum. Ef leyfishafi hefur ekki bætt úr annmörkum að þremur vikum liðnum skal Vegagerðin senda skriflega tilkynningu til leyfishafa um brottfall leyfis og frá hvaða tíma leyfi telst niður fallið.
10. gr.
Leyfisskyldir farmflutningar stundaðir án leyfis.
Tilkynna má til Vegagerðarinnar ef leyfisskyld starfsemi samkvæmt reglugerð þessari er stunduð án tilskilins leyfis. Tilkynningar geta hvort heldur sem er verið munnlegar eða skriflegar og skulu innihalda þau atriði sem talin eru upp í 2. mgr. 9. gr.
Þegar Vegagerðinni berst tilkynning samkvæmt 1. mgr. skal hún þegar senda þeim er tilkynning beinist að skriflega fyrirspurn um starfsemina og gefa viðkomanda 2 vikur til að gefa skýringar á starfsemi sinni.
Þegar skýringar hafa borist Vegagerðinni sbr. 2. mgr. skal hún leggja mat á hvort starfsemi er leyfisskyld. Komist Vegagerðin að því að starfsemi er leyfisskyld skal hún senda viðkomanda tilkynningu þess efnis þar sem gefinn er 2ja vikna frestur til að sækja um leyfi.
Ef Vegagerðin hefur komist að því að starfsemi er leyfisskyld eftir að hafa fengið skýringar sbr. 3. mgr. en viðkomandi sækir ekki um leyfi innan tilskilins frests er sérstökum eftirlitsmönnum Vegagerðarinnar heimilt að stöðva ökutæki hans og kyrrsetja það uns umsókn skv. 6. gr. hefur verið lögð fram eða þar til flutningur hefur verið falinn aðila með tilskilin leyfi.
Ef ekki er orðið við ósk Vegagerðarinnar sbr. 2. mgr. um skýringar á starfsemi skal Vegagerðin senda ítrekun þar sem viðkomanda er gefinn 7 daga frestur til að gefa skýringar á starfsemi. Ef ekki er orðið við ítrekaðri beiðni sbr. 1. ml. er eftirlitsmönnum Vegagerðarinnar heimilt að stöðva ökutæki viðkomanda til að kanna um hvernig flutning er að ræða og hvort starfsemi er leyfisskyld.
Vegagerðin getur leitað aðstoðar lögreglu til að framfylgja stöðvun og kyrrsetningu ökutækis í þeim tilvikum sem getið er um í 4. og 5. mgr.
11. gr.
Stöðvun og kyrrsetning ökutækja.
Ökumanni er skylt að verða við fyrirmælum eftirlitsmanns Vegagerðarinnar um stöðvun, kyrrsetningu og áframhaldandi akstur ökutækis. Þegar eftirlitsmaður gefur fyrirmæli um kyrrsetningu ökutækis er óheimilt að halda áfram för þess fyrr en gerðar hafa verið ráðstafanir til að tryggja áframhaldandi flutning farms.
Hafi ökutæki verið kyrrsett skal ökumaður þegar í stað gera ráðstafanir til að tryggja áframhaldandi flutning farms með því að fela flutningsaðila með tilskilin leyfi að annast flutninginn. Þegar farmi hefur verið tryggður áframhaldandi flutningur með ökutæki og á ábyrgð flutningsaðila sem uppfyllir kröfur laga skal heimila áframhaldandi för kyrrsetts ökutækis.
12. gr.
Refsingar.
Brot gegn 1. og 3. gr. reglugerðar þessarar varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum og skal fara með slík mál að hætti opinberra mála.
13. gr.
Málskot.
Stjórnsýsluákvörðunum Vegagerðarinnar samkvæmt lögum þessum má skjóta til ráðuneytisins. Um málsmeðferð fer samkvæmt stjórnsýslulögum, nr. 37/1993.
14. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. 73/2001 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 983/2001 um vöru- og efnisflutninga á landi.
Samgönguráðuneytinu, 26. janúar 2006.
Sturla Böðvarsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.