1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2000 frá 31. maí 2000 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 823/2000 frá 19. apríl 2000 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða milli áætlunarskipafélaga (skipafélagasamtaka).
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 823/2000 hefur áður verið birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 284/2001 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 2001, bls. 637-644.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.
Með reglugerð þessari fellur úr gildi 2. gr. k reglugerðar nr. 594/1993 um efnislegar samkeppnisreglur í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. reglugerð nr. 284/2001.
Viðskiptaráðuneytinu, 18. september 2006.
F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.
Jónína S. Lárusdóttir.